Fasteignasalan Fagvís kynnir:
Nýtt verslunar- og þjónustuhúsnæði á jarðhæð í Hveragerði.
113fm snyrtilegt bil með miklu auglýsingagildi.
Frábær eign með mikla möguleika.
Húsið er afar vel staðsett með og blasir við frá þjóðvegi 1.
Húsið er staðsett við hliðina á verslunarmiðstöðinni Sunnumörk, bjart,
með stórum gluggum og mikilli lofthæð.
Á neðri hæðinni er hárgreiðslustofa, skrifstofa Rauða krossins og Sjálfstæðisfélag Hveragerðis.
Athugið að aðeins er eitt bil eftir en það er 113fm.
Gert er ráð fyrir léttum iðnaði í húsinu en á efri hæð hússins eru 9 íbúðir.
Engar innkeyrsluhurðir eru á húsnæðinu en þó eru hurðir stórar og
gengið frá þeim á þann hátt að hægt er að keyra inn vörubretti.
Húsið er fullklárað að utan, einangrað og klætt með sements-fiberplötum
með múrsteinsáferð, PVC gluggar og útihurðir. Lóðin er malbikuð með
máluðum bílastæðum og hitalagnir í gangstéttum.
Búið er að klæða alla veggi, og mála eina umferð.
Búið er að draga í allt rafmagn og rafmagnstafla klár.
Búið er að tengja gólfhita.
Nánari upplýsingar á skrifstofu
Fagvís - Fasteignasölu Hveragerðis
Breiðumörk 13
Sími: 483-5900 / fagvis@fagvis.is
Kristín Rós Magnadóttir
Löggiltur fasteignasali og lögfræðingur
S :
860-2078
kristinros@fagvis.is
Elínborg María Ólafsdóttir
Nemi til lögg. fasteignasala
S :
861-6866
elinborg@fagvis.is